Uppboð
Hér er stríð og hér er mæða
hreppsstjórinn og oddvitinn
sín á milli saman ræða
sumir kunna ekki að græða
Viltu í nefið vinur minn?
sumir kunna ekki að græða
Viltu í nefið vinur minn?
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Ah, haha!
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Blágrá eins og blóðið frjósi
bóndi og kona skima þar
börnin ugg sinn láta í ljósi
leidd er kýrin út úr fjósi
sólin skín á skuldirnar
leidd er kýrin út úr fjósi
sólin skín á skuldirnar
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Ah, haha!
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Gæta verður heildarhagsins
hamrinum ennþá syngur í
Yfir glöðum gestum dagsins
glampar fegurð sólarlagsins
Lóan syngur dirrindí
Yfir glöðum gestum dagsins
Lóan syngur dirrindí
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn?
Ah, haha!
Viltu í nefið?
Viltu í nefið vinur minn.
.... Ú, ja!
Gítar stef í byrjun lagsins.Á Guitarparty: opna með hljómum