Seinna meir

Jóhann Helgason · Start

Þey, þey, þýtur í mó,
hrein mey, sælleg og rjóð
Sei, sei, verður hún mín?
Heit, heit, ástkær og hýr.

Allir eru að kalla út um allt á alla
og bráðum verður hún horfin mér frá
horfin út á sjóinn, eitthvað út í bláinn
horfin inn í annan heim.

Hey, hey, heyrðu mig nú,
sey, sey, segðu ekki nei
Þey, þey, hlustaðu á
Hey, hey, vertu mér hjá.

Allir eru'að kalla út um allt á alla
og bráðum verður hún farin mér frá
Eitthvað út á sæinn, inn og út um bæinn
horfin inn í annan heim.

     Seinna meir sé ég við þér,
     seinna meir trúirðu mér
     Þú mátt ekki fela þig.
     Allir eru að kalla út um allt á alla,
     endalaust um allan heim.

Allir eru'að kalla út um allt á alla
og bráðum verður hún farin mér frá
Eitthvað út á sæinn, inn og út um bæinn
horfin inn í annan heim.

Þey, þey, þýtur í mó,
hrein mey, sælleg og rjóð
Sey, sey, verður  hún mín?
Heit, heit, ástkær og hýr.

     Allir eru'að tala högnar eru'að mala
     í huga mínum er ástin svo heit.
     Tíminn er að líða, fortíðin að svífa
     Eitthvað inn í annan heim.

     Seinna meir sé ég við þér,
     seinna meir trúirðu mér
     Þú mátt ekki fela þig.
     Allir eru að kalla út um allt á alla,
     endalaust um allan heim.

     Seinna meir sé ég við þér,
     seinna meir trúirðu mér
     Þú mátt ekki fela þig.
     Allir eru að kalla út um allt á alla,
     endalaust um allan heim.

Á Guitarparty: opna með hljómum