Gleðibankinn

ICY · Magnús Eiríksson

Tíminn líður hratt
á gervihnattaöld
Hraðar sérhvern dag,
hraðar sérhvert kvöld
Ertu stundum hugsandi yfir
öllum gulu miðunum?
Þú tekur kannski of mikið
út úr Gleðibankanum?

Hertu upp huga þinn,
hnýttu allt í hnút
Leggur ekkert inn,
tekur bara út
Syndir þínar sem þú aldrei drýgðir
sitja í þankanum
Óútleystur tékki í
Gleðibankanum

     Þú skalt syngja lítið lag
     Um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér
     Og láttu heyra að þú
     eigir litið gleði hús
     Kósí lítið lag,
     sem gæti gripið mig
     og hvern sem er
     Þú leggur ekki inn í
     Gleðibankann tóman Blús

     Þú skalt syngja lítið lag
     Um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér
     Og láttu heyra að þú
     eigir litið gleði hús
     Kósí lítið lag,
     sem gæti gripið mig
     og hvern sem er
     Þú leggur ekki inn í
     Gleðibankann tóman blús

Hertu upp huga þinn,
hnýttu allt í hnút
Leggur ekkert inn,
tekur bara út
Syndir þínar sem þú aldrei drýgðir
sitja í þankanum
Óútleystur tékki í
Gleðibankanum

     Þú skalt syngja lítið lag
     Um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér
     Og láttu heyra að þú
     eigir lítið gleði hús
     Kósí lítið lag,
     sem gæti gripið mig
     og hvern sem er
     Þú leggur ekki inn í
     Gleðibankann tóman Blús

Á Guitarparty: opna með hljómum