Pípan (Ástarljóð)
Ég sá hana fyrst á æskuárum ósnortin var hún þá. Hún fyllti loftið af angan og ilmi æsandi losta og þrá. Síðla á kvöldin við fórum í felur mér fannst þetta svolítið ljótt. En alltaf varð þetta meiri og meiri munaður hverja nótt Ég ætlaði seinna að hætta við hana ég hélt að það yrði létt. En ég varð andvaka næstu nætur því nú voru takmörk sett. Endurminningar örvuðu blóðið ástin mér villti sýn. Innan skamms fór ég aftur til hennar og eftir það varð hún mín. Hún fylgir mér ennþá svo trygg og trú svo tágrönn og hnakkakert. Aldrei hefur hún öðrum þjónað né annarra varir snert. Hvenær sem grípur mig hugarangur hún huggar mig raunum í. Þá treð ég í hana tóbaksmoði og tendra svo eld í því. Þá treð ég í hana tóbaksmoði og tendra svo eld í því.
Á Guitarparty: opna með hljómum