Síðan eru liðin mörg ár

Brimkló · C. Taylor · Þorsteinn Eggertsson

Ég læðist oft
upp á háaloft
til að hnýsast í gömul blöð.
Þegar sit ég einn
þar koma' upp minningar
og atburðarás verður hröð:
Allir strákar vor' í támjóum skóm
og stelpur með túberað hár.
Já, og á sunnudögum var restrasjón
-  en síðan eru liðin mörg ár.

     Þeir greidd' í plíku
     á þessum dögum.
     Menn greidd' í píku
     undir Presleylögum.
     Komdu með upp á loft.
     Þú færð séð margt sem gerðist þá
     (hárið smurt með Adrett).
     Ef ég mér tímavél ætti,
     þá gaman mér þætt' að
     fara aftur ein tólf, þrettán ár.
     Þá fannst mér tíðin góð
     en brátt við verðum ellimóð.

Það var kannsk' ekkert smart,
þó var ansi margt
sem var skemmtilegra í „den tid“.
Þegar Glaumbær stóð
var hver helgi góð;
allt á fullu ár og síð.
Þá var hljómsveit í hverjum skóla.
Þá voru sömu vonir og þrár
þá var rúnturinn
meldingapunkturinn
-  en síðan eru liðin mörg ár.

     Þeir greidd' í plíku
     á þessum dögum.
     Menn greidd' í píku
     undir Presleylögum.
     Komdu með upp á loft.
     Þú færð séð margt sem gerðist þá
     (hárið smurt með Adrett).
     Ef ég mér tímavél ætti,
     þá gaman mér þætt' að
     fara aftur ein tólf, þrettán ár.
     Þá fannst mér tíðin góð
     en brátt við verðum ellimóð.

Þá var hljómsveit í hverjum skóla.
Þá voru sömu vonir og þrár
þá var rúnturinn
meldingapunkturinn
-  en síðan eru liðin mörg ár.

     Þeir greidd' í plíku
     á þessum dögum.
     Menn greidd' í píku
     undir Presleylögum.
     Komdu með upp á loft.
     Þú færð séð margt sem gerðist þá
     (hárið smurt með Adrett).
     Ef ég mér tímavél ætti,
     þá gaman mér þætt' að
     fara aftur ein tólf, þrettán ár.
     Þá fannst mér tíðin góð
     en brátt við verðum ellimóð.
     Þá fannst mér tíðin góð
     en brátt við verðum ellimóð

Á Guitarparty: opna með hljómum