Stál og hnífur
Þegar ég vaknaði um morguninn,
er þú komst inn til mín,
hörund þitt eins og silki,
andlitið eins og postulín.
Við bryggjuna bátur vaggar hljótt
í nótt mun ég deyja.
Mig dreymdi dauðinn sagði: „Komdu fljótt,
það er svo margt sem ég ætla þér að segja.“
Ef ég drukkna, drukkna í nótt,
ef þeir mig finna.
Þú getur komið og mig sótt,
þá vil ég á það minna.
Stál og hnífur er merkið mitt,
merki farandverkamanna.
Þitt var mitt og mitt var þitt
meðan ég bjó á meðal manna.Á Guitarparty: opna í vafra