Þúsund hjörtu (Þjóðhátíðarlag 2023)

Gauti Þeyr Másson · Þormóður Eiríksson · Emmsjé Gauti

Ég er með vorboða í vasanum
Þegar ég rölti af stað með þér
Ég elsk'að hlað'í minningar
Með því að gleyma mér með þér

Hvað er betra en kvöldin
Þegar kæruleysið tók völdin
Það er stundin sem ég fæ aðeins með þér

     Þegar þúsund hjörtu slá í takt
     Að þú sért hjá mér, það er allt
     Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
     Þegar þúsund hjörtu slá í takt

Ég finn orkuna magnast, margfaldast
dagur kveður sólin sest
Þúsund andlit allt í kringum mig
En þitt bros gerir mest

Hvað er betra en höndin
Þegar nóttin, kemur köld-in
Ég er þú og ég get svarið að þú ert ég

     Þegar þúsund hjörtu slá í takt
     Að þú sért hjá mér, það er allt
     Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
     Þegar þúsund hjörtu slá í takt

Ég er bergið, þú ert mosinn
Þú ert eldfim, ég er blossinn
Þarf að segja meir?

Þegar við hverfum, inn í hópinn
Þá gleypir okkur nóttin
annað kvöld á Heimaey

     Þegar þúsund hjörtu slá í takt
     Að þú sért hjá mér, það er allt
     Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
     Þegar þúsund hjörtu slá í takt

     Þegar þúsund hjörtu slá í takt (Þarf að segja meir?)
     Að þú sért hjá mér, það er allt (Hér á Heimaey)
     Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
     Þegar þúsund hjörtu slá í takt

Á Guitarparty: opna með hljómum