Sem lindin tær

Álftagerðisbræður · Bjarki Árnason · Helgi Björnsson · Casano Conty · Karlakórinn Vísir · Reiðmenn Vindanna

Ó hve gott á lítil lind,
leika frjáls um hlíð og dal,
líða áfram létt sem hind,
líta alltaf nýja mynd.

Hvísla ljóð' að grænni grein,
glettast ögn við lítil blóm,
lauma koss' á kaldan stein,
kastast áfram tær og hrein.

     Ég vildi að ég væri eins og þú
     og vakað gæti bæði daga og nætur,
     þá öllu skyldi kveða óð um unað, ást og trú
     sem aldrei bregst en hugga lætur.
     Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
     sem lög á sína undrastrengi slær.

Hvísla ljóð' að grænni grein,
glettast ögn við lítil blóm,
lauma koss' á kaldan stein,
kastast áfram tær og hrein.

     Ég vildi að ég væri eins og þú
     og vakað gæti bæði daga og nætur,
     þá öllu skyldi kveða óð um unað, ást og trú
     sem aldrei bregst en hugga lætur.
     Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
     sem lög á sína undrastrengi slær.

     Já, ef ég mætti lifa eins og lindin silfurtær
     sem lög á sína undrastrengi slær.

Á Guitarparty: opna með hljómum