Rómeó og Júlía (Bubbi Morthens)

Bubbi Morthens

Uppi í risinu sérðu lítið ljós,
heit hjörtu, fölnuð rós
Matarleifar, bogin skeið,
undan oddinum samviskan sveið.

Þau trúðu á drauma, myrkrið svalt,
draumarnir tilbáðu þau.
Fingurnir gældu við stálið kalt,
lífsvökvann dælan saug.

Draumarnir langir runnu í eitt,
dofin þau fylgdu með.
Sprautan varð lífið, með henni gátu breytt
því sem átti eftir að ske.

Uppi í risinu lágu og ófu sinn vef,
óttann þræddu upp á þráð.
Ekkert gat skeð því það var ekkert ef
ef vel var að gáð.

Hittust á laun, léku í friði og ró,
í skugganum sat Talía.
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó,
við hlið hans sat Júlía.
Trúðu á drauma, myrkrið svalt,
draumarnir tilbáðu þau.

Rómeó - Júlía,
Rómeó - Júlía.

Þegar kaldir vindar haustsins, blása
naprir um göturnar,
sérðu Júlíu standa, bjóða sig hása,
í von um líf í æðarnar.

Því Rómeó villtist inn á annað svið,
hans hlutverk gekk ekki þar.
Of stór skammtur stytti þá bið,
inn á klósetti á óþekktum bar.

Hittust á laun, léku í friði og ró,
í skugganum sat Talía.
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó,
við hlið hans sat Júlía.
Trúðu á drauma, myrkrið svalt,
draumarnir tilbáðu þau.

Rómeó - Júlía,
Rómeó - Júlía.

Rómeó - Júlía,
Rómeó - Júlía.

Rómeó - Júlía,
Rómeó - Júlía.

Á Guitarparty: opna með hljómum