Blindsker
Skömmu áður en vindurinn sofnar uppi á hæðunum eins og morgun döggin sprettur svitinn fram. Andartaki áður en nýr dagur kemur með póstinum ákveður sólin að, hylja sinn harm. Og ég veit að ég þarf að leika sama leikinn, veruleikinn er eins og gömul mynd. Ég sest niður með kaffið, ég set Bowie á fóninn. Þitt uppáhalds lag var, "Wild is the wind". Öll þessi ár sem gáfu okkur það sem aðrir óskuðu sér. Elskendur í stormi sem aldrei sáu að ástin var aðeins blindsker. Ég geng sömu götuna, hitti sama fólkið, geri sömu hlutina og ég gerði með þér. Þó dagurinn sé sá sami, er það ekki sama nóttin, því nóttin var okkar tími til að byrja með. Og ég veit að ég þarf að leika sama leikinn, veruleikinn er eins og gömul mynd. Ég sest niður með kaffið, ég set Bowie á fóninn. Þitt uppáhalds lag var, "Wild is the wind". Öll þessi ár sem gáfu okkur það sem aðrir óskuðu sér. Elskendur í stormi sem aldrei sáu að ástin var aðeins blindsker. Blindsker. Öll þessi ár sem gáfu okkur það sem aðrir óskuðu sér. Elskendur í stormi sem aldrei sáu að ástin var aðeins blindsker. Blindsker.
Á Guitarparty: opna með hljómum