Eitt lag enn (Stjórnin)

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson · Hörður G. Ólafsson · Stjórnin

Með þér, verð ég eins og vera ber
Alveg trylltur, kemst í takt við þig,
þú tælir mig

Ég fer, eftir því sem augað sér
Þegar hugur girnist heimta ég,
verð hætt - u - leg

     Eitt lag enn,
     ekta sveiflu og hér
     þreytist enginn, þú skalt dansa,
     það sem eftir er
     Einn takt til!
     Tónar leika sér að
     Því sem heillar mig og
     hæfir, beint í hjartastað

Hjá mér, engin spurning um það er
Þegar mætumst við á miðri leið,
ég magna seið

Það er, ofsa fjör sem fylgir þér
Svo ég einhvern veginn umturnast,
fæ æð - is - kast

     Eitt lag enn,
     ekta sveiflu og hér
     þreytist enginn, þú skalt dansa,
     það sem eftir er
     Einn takt til!
     Tónar leika sér að
     Því sem heillar mig og
     hæfir, beint í hjartastað

Ég er frjáls í faðmi þér,
við förum hvert sem er
Látum töfra lífsins
tak' af okkur völd

     Eitt lag enn,
     ekta sveiflu og hér
     þreytist enginn, þú skalt dansa,
     það sem eftir er
     Einn takt til!
     Taflið snýst um það eitt
     Að við höldum áfram hraðar,
     hikum aldrei neitt

Að við höldum áfram, hraðar nú
Hikum aldrei, ég og þú,
við neitt.

Á Guitarparty: opna með hljómum