Slá í gegn

Valgeir Guðjónsson · Stuðmenn

ahh, ahha, ahha, úhh, úhh, úhh.
ahh, ahha, ahha, úhh, úhh, úhh.

Ef ég ætti óskastein
yrði óskin aðeins ein,
ég er alltaf að reyna
þú veist hvað ég meina,
um frægð og framandi lönd.

     Slá í gegn, (ahh, ahha, ahha)
     slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     þú veist að ég þrái  (ahh, ahha, ahha)
     að slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     af einhverjum völdum
     hefur það reynst mér um megn.

Ég gæti boðið þér betri kjör
bíl og íbúð, brúðarslör
vakinn og sofinn,
stálsleginn, dofinn
ég reyni að öðlast frægð.

     Slá í gegn, (ahh, ahha, ahha)
     slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     þú veist að ég þrái  (ahh, ahha, ahha)
     að slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     af einhverjum völdum
     hefur það reynst mér um megn.

Ég mundi gera næstum hvað sem er fyrir
frægðina,
nema kannski að koma nakinn fram.
Allt annað fyrirtak,
ég færi heljarstökk aftur á bak
af litlu bretti fyrir frægðina.

     Slá í gegn, (ahh, ahha, ahha)
     slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     þú veist að ég þrái  (ahh, ahha, ahha)
     að slá í gegn (úhh, úhh, úhh)
     af einhverjum völdum
     hefur það reynst mér um megn.

Á Guitarparty: opna með hljómum