Til baka

Mýrdalssandur

GCD · Bubbi Morthens · Rúnar Júlíusson

Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar
á Mýrdalssandi og hvergi skjól að fá.
Það er yfirgefinn bíll út í vegarkanti og
hvergi hræðu neinstaðar að sjá.

Þín versta mara, hún læðist og leitar
líf þitt hremmir með varir blóðheitar.
Þú getur hlaupið en þú felur þig ekki,
hann fangar þig óttinn með sína

     Ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     og þú sleppur ekki.

Með taugarnar þandar,
titrandi andar,
kjökrandi skríður,
skjálfandi bíður
og tíminn líður.

Það er rigning og myrkur og meinlegir skuggar
á Mýrdalssandi og hvergi skjól að fá.
Það er yfirgefinn bíll út í vegarkanti og
hvergi hræðu neinstaðar að sjá.

Þín versta mara, hún læðist og leitar
líf þitt hremmir með varir blóðheitar.
Þú getur hlaupið en þú felur þig ekki,
hann fangar þig óttinn með sína

     Ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     og þú sleppur ekki.

Með taugarnar þandar,
titrandi andar,
kjökrandi skríður,
skjálfandi bíður
og tíminn líður.

Þín versta mara, hún læðist og leitar
líf þitt hremmir með varir blóðheitar.
Þú getur hlaupið en þú felur þig ekki,
hann fangar þig óttinn með sína

     Ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     ísköldu hlekki,
     og þú sleppur ekki.

Með taugarnar þandar,
titrandi andar,
kjökrandi skríður,
skjálfandi bíður
og tíminn líður.

Á Guitarparty: opna í vafra