Til baka

Á tjá og tundri

Guðmundur Jónsson · Sálin hans Jóns míns

Allt er á tjá og tundri
get ekki fötin mín fundið
Ei hissa þó þig undri
er svipur hjá sjónu
Framlágur heldur er kappinn
floginn um hvippinn og hvappinn
Ég verð að safna í sarpinn
og sofa hjá Jónu

     Ég bið um frið, æ gef mér grið
     ég verð að hvílast stundarkorn
     Ó, ekki meir, ég er eins og leir.
     Ég spyr: Færðu aldrei nóg?

     Nú er ég farinn (nú er ég farinn)
     meinilla farinn og búinn að vera
     Þverrandi þor, ekkert hægt að gera
     nú er ég farinn.

Með hausgarminn undir hendi
ég henni tóninn minn sendi
Veit ekki hvar ég lendi
Ég er nakinn um nárann
Nú finnst mér mál að linni
verð ekki lengur hér inni
Ég vona bara að hún finni
mig ekki í fjöru

     Ég bið um frið, æ gef mér grið
     ég verð að hvílast stundarkorn
     Ó, ekki meir, ég er eins og leir.
     Ég spyr: Færðu aldrei nóg?

     Nú er ég farinn (nú er ég farinn)
     meinilla farinn og búinn að vera
     Þverrandi þor, ekkert hægt að gera
     nú er ég farinn.

     Nú er ég farinn (nú er ég farinn)
     meinilla farinn og búinn að vera
     Þverrandi þor, ekkert hægt að gera
     nú er ég farinn.

     Nú er ég farinn (nú er ég farinn)
     meinilla farinn og búinn að vera
     Þverrandi þor, ekkert hægt að gera
     nú er ég farinn.

     nú er ég farinn.
     nú er ég farinn.
     nú er ég farinn.

Á Guitarparty: opna í vafra