Ekkert breytir því

Sálin hans Jóns míns · Jens Hansson · Stefán Hilmarsson

Ef ég ætti fleiri stundir, fleiri mínútur.
Fleiri orð, fleiri nætur fyrir þig.
Þó að ævin geymi óteljandi sekúndur,
þá er oft eins og tíminn svíkji mig.

     Samt er ekkert sem að breytir því.
     Samt er ekkert sem að breytir því
     hversu heitt þetta hjarta þráir þig.

Ef ég hefði önnur færi, önnur augnablik.
Önnur ráð, aðra kosti handa þér.
Oft á tíðum á ég ekki nógu hægt um vik
til að sá eða gefa af sjálfum mér.

     Samt er ekkert sem að breytir því.
     Samt er ekkert sem að breytir því
     hversu heitt þetta hjarta þráir þig.
     Það er ekkert sem að breytir því,
     Ekkert annað sem mig þyrstir í.
     Þessi sál, þessi hugur þráir þig.

Þó að myrkrið virðist endalaust
vetur, sumar, vor og haust,
skaltu minnast þess að lífið er
ýmist fjara eða flóð.

     Það er ekkert sem að breytir því.
     Það er ekkert sem að breytir því
     hversu heitt þetta hjarta þráir þig. (Ohhh)
     Það er ekkert sem að breytir því,
     Ekkert annað sem mig þyrstir í.
     Þessi sál, þessi hugur þráir þig.

     Það er ekkert sem að breytir því.
     Það er ekkert sem að breytir því
     hversu heitt þetta hjarta þráir þig.

Ef ég ætti fleiri stundir, fleiri mínútur.
Fleiri orð, fleiri nætur fyrir þig.

Á Guitarparty: opna með hljómum