Álfheiður Björk

Eyjólfur Kristjánsson · Björn Jörundur Friðbjörnsson

Álfheiður Björk, ég elska þig,
hvað sem þú kannt
að segja við því.
Ég veit annar sveinn
ást þína fær.
Hvað get ég gert?
Hvað get ég sagt?

Álfheiður Björk, við erum eitt.
Ást okkar grandað
aldrei fær neitt.
Ég veit annar sveinn
hjarta þitt þráir.
Hvað get ég gert?
Hvað get ég sagt?

     Þú mátt ekki láta þennan dóna,
     þennan fylliraft og róna, glepja þig.
     Þú mátt ekki falla í hans hendur,
     oft hann völtum fótum stendur.
     Ó, hlustaðu á mig
     því ég elska þig, Álfheiður Björk.

Álfheiður Björk, ég elska þig.
Líf mitt er einskis
virði án þín
Segð' að þú sért
mín alla tíð
Álfheiður Björk,
ég eftir þér bíð.

     Þú mátt ekki láta þennan dóna,
     þennan fylliraft og róna, glepja þig.
     Þú mátt ekki falla í hans hendur,
     oft hann völtum fótum stendur.
     Ó, hlustaðu á mig
     því ég elska þig, Álfheiður Björk
     Álfheiður Björk,
     því ég elska þig, Álfheiður Björk.

Á Guitarparty: opna með hljómum