Í sól og sumaryl

Hljómsveit Ingimars Eydal · Gylfi Ægisson

Í sól og sumaryl ég sat einn fagran dag.
Í sól og sumaryl ég samdi þetta lag
fuglarnir sungu og lítil falleg hjón
flugu um loftin blá, hve það var fögur sjón.
Í sól og sumaryl, sér léku lítil börn,
ljúft, við litla tjörn.

Í sól og sumaryl, ég sat og horfði á
hreykna þrastarmóður mata unga sína smá.
Faðirinn stoltur hann stóð þar sperrtur hjá
og fagurt söng svo fyllti hjartað frið.
Í sól og sumaryl, sér léku lítil börn,
ljúft, við litla tjörn.

Í sól og sumaryl ég samdi þetta lag,
hve fagurt var þann dag.

Á Guitarparty: opna með hljómum