Ford 57 (Komdu í partý)
Ég var að rúnta í ræfilslegum Ford 57, einmana í brakinu og klukkan orðin tvö. Þá urðu á vegi mínum „pæs“, ég veifaði upp á grín, þær sögðu: „Komdu komdu komdu í partý til mín“. Veistu hvað ég gerði þarna á gamla fordinum, bauð þeim öllum þremur far og kveikt' á kananum. Ég spurði hvert skal aka og hvort einhver ætti vín, þær sögðu: „Komdu komdu komdu í partý til mín“. Við komum svo í kyrrlátt hús og kveiktum þar dauf ljós, þær komu svo með brennivín og kóka kóla í dós. Þær klæddu sig úr hverri spjör og kneifðu þetta vín, þær sögðu „Komdu komdu komdu í partý til mín“. Þær sögðu „komdu, komdu komdu í partí til mín". þær sögðu „komdu, komdu komdu í partí til mín".
Á Guitarparty: opna með hljómum